Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1387, 152. löggjafarþing 699. mál: hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. (geymsla koldíoxíðs).
Lög nr. 67 27. júní 2022.
I. KAFLI
Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Aðgangur þriðja aðila að flutningskerfi og geymslusvæði.
Mögulegir notendur skulu hafa aðgang að flutningskerfi koldíoxíðs og/eða geymslusvæði rekstraraðila, í þeim tilgangi að flytja þangað og dæla þar niður koldíoxíði til geymslu. Rekstraraðila er heimilt að innheimta fyrir það gjald.
Rekstraraðila er heimilt að synja um aðgang að flutningskerfi og/eða geymslusvæði, að teknu tilliti til eftirfarandi viðmiða:
Rekstraraðila er einkum heimilt að synja um aðgang vegna skorts á rými ef tækniforskriftir eru ósamrýmanlegar og í þeim tilvikum þegar tenging er ekki til staðar og erfitt er að bæta úr. Synji rekstraraðili um aðgang að flutningskerfi og/eða geymslusvæði skal sú ákvörðun rökstudd.
II. KAFLI
Breyting á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021.
III. KAFLI
Breyting á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012.
Þingskjal 1387, 152. löggjafarþing 699. mál: hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. (geymsla koldíoxíðs).
Lög nr. 67 27. júní 2022.
Lög um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana og lögum um loftslagsmál (geymsla koldíoxíðs).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:- Í stað orðsins „niðurdælingar“ í 19., 21. og 22. mgr. kemur: geymslu.
- Í stað orðsins „niðurdælingarsvæðis“ í 20. mgr. kemur: geymslusvæðis.
- 23. mgr. orðast svo:
- 24. mgr. orðast svo:
- 25. mgr. orðast svo:
- 26. mgr. orðast svo:
- 27. mgr. orðast svo:
2. gr.
- Í stað orðsins „niðurdælingarsvæði“ í a-lið 1. mgr. 22. gr., 5. tölul. 33. gr. b, tvívegis í 1. mgr. og 5. mgr. 33. gr. c, 2. mgr. 33. gr. e, 1. mgr. 33. gr. f, tvívegis í inngangsmálslið og 1. og 3. tölul. 1. mgr. 33. gr. g, 1. og 2. mgr. 33. gr. j og 7. mgr. 67. gr. laganna kemur: geymslusvæði.
- Í stað orðsins „niðurdælingarsvæðis“ í 2. tölul. 33. gr. b og a-lið 4. mgr. 33. gr. d laganna kemur: geymslusvæðis.
- Í stað orðsins „niðurdælingarsvæða“ í 6. tölul. 33. gr. b laganna kemur: geymslusvæða.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 33. gr. a laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Orðið „varanlegri“ í 3. mgr. fellur brott.
4. gr.
Í stað orðsins „niðurdælingar“ í 1., 3. og 4. tölul. 33. gr. b, 1. mgr., tvívegis í 2. mgr., tvívegis í 3. mgr., 4. og 6. mgr. 33. gr. c, 2. mgr. 33. gr. f, 1. mgr. 33. gr. j og 6. tölul. 1. mgr. 67. gr. laganna kemur: geymslu.5. gr.
- Í stað orðsins „niðurdælingargeymis“ í 1. tölul. 33. gr. b og 4. mgr. 33. gr. c laganna kemur: geymslugeymis.
- Í stað orðsins „niðurdælingargeymi“ í 2. tölul. 33. gr. b, 2. og 3. mgr. 33. gr. c og 2. mgr. 33. gr. e laganna kemur: geymslugeymi.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 33. gr. c laganna:- Í stað orðsins „niðurdælingaráætlun“ í 2. mgr. kemur: heildarmagn koldíoxíðs sem verður dælt niður og geymt.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Könnun og starfsleyfi til geymslu.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 33. gr. d laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- 2. mgr. fellur brott.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Samsetning koldíoxíðsstraums til geymslu.
8. gr.
Í stað orðanna „niðurdælingar koldíoxíðs til varanlegrar geymslu“ í 3. mgr. 33. gr. f laganna kemur: geymslu koldíoxíðs.9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 33. gr. g laganna:- Orðin „eða steinrunnið“ í 1. tölul. falla brott.
- Á eftir orðinu „niðurdælingu“ í 3. tölul. bætist: og geymslu.
10. gr.
33. gr. h laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:Rekstraraðila er heimilt að synja um aðgang að flutningskerfi og/eða geymslusvæði, að teknu tilliti til eftirfarandi viðmiða:
- geymslugetu sem eðlilegt er að sé tiltæk á geymslusvæði,
- markmiðs íslenskra stjórnvalda samkvæmt alþjóðalögum um kolefnisföngun og geymslu koldíoxíðs,
- nauðsynjar þess að synja um aðgang í tilvikum þegar tækniforskriftir eru ósamrýmanlegar og erfitt er að bæta úr,
- fjölda þeirra aðila sem óska eftir aðgangi.
Rekstraraðila er einkum heimilt að synja um aðgang vegna skorts á rými ef tækniforskriftir eru ósamrýmanlegar og í þeim tilvikum þegar tenging er ekki til staðar og erfitt er að bæta úr. Synji rekstraraðili um aðgang að flutningskerfi og/eða geymslusvæði skal sú ákvörðun rökstudd.
11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 33. gr. i laganna:- Í stað orðsins „niðurdælingarsvæði“ í 1. málsl. 1. mgr. og 3. mgr. kemur geymslusvæði.
- 2. málsl. 1. mgr. fellur brott.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Lausn deilumála vegna aðgangs að flutningskerfi og geymslusvæði.
12. gr.
Orðin „eða steinrunnið“ í 2. mgr. 33. gr. j laganna falla brott.13. gr.
Fyrirsögn VI. kafla A laganna verður: Geymsla koldíoxíðs í jörðu.14. gr.
Töluliður 6.9 í viðauka I við lögin orðast svo: Föngun koldíoxíðsstrauma frá atvinnurekstri sem fellur undir lög þessi til geymslu í jörðu.15. gr.
Nýr töluliður bætist við viðauka II við lögin, svohljóðandi: Geymsla koldíoxíðs í jörðu.16. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. viðauka við lögin:- Orðið „varanlegrar“ í lið 3.09, 3.10 og 3.20 fellur brott.
- Í stað orðsins „Niðurdælingarsvæði“ í lið 3.18 kemur: Geymslusvæði.
17. gr.
Í stað orðsins „niðurdælingu“ í 5. mgr. 21. gr. b laganna kemur: geymslu.18. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 15. júní 2022.